A free download from www.dertz.in       
 
Project Gutenberg's Rímur af Grámanni í Garðshorni, by Jón Hjaltason 
This eBook is for the use of anyone anywhere at no cost and with 
almost no restrictions whatsoever. You may copy it, give it away or 
re-use it under the terms of the Project Gutenberg License included 
with this eBook or online at www.gutenberg.org 
Title: Rímur af Grámanni í Garðshorni 
Author: Jón Hjaltason 
Release Date: July 24, 2007 [EBook #22137] 
Language: Icelandic 
Character set encoding: ISO-8859-1 
0. START OF THIS PROJECT GUTENBERG EBOOK RÍMUR AF 
GRÁMANNI Í GARÐSHORNI *** 
Produced by Jóhannes Birgir Jensson 
RÍMUR 
AF 
GRÁMANNI Í GARDSHORNI 
KVEDNAR AF 
JÓNI HJALTASYNI 
Á ÁRMÚLA 
 
ÍSAFJÖRDUR
KOSTNADARMADUR: HJALTI JÓNSSON 
PRENTSMIDJA ÞJÓDVILJANS UNGA 
1895 
0. ríma. 
Óbreytt ferskeytt. 
 . Dagur grímu fælir frá, fuglar syngja taka; rístu hani Þundar þá, þér er 
mál að kvaka. 
. Veit jeg ekki vilja nú, vefjur orma haga, að flatmagir í fleti þú fram á 
miðja daga. 
 . Hefja máttu hljóð á ný, hauðurs skemmta konum, söngva færðu efni í 
Íslands Þjóðsög_o_num. 
 . Einkanlega óskum vér, að þú söngvum beitir fyrir sólar síkja ver, sem 
að Gísli heitir. 
 . Settu þig á hendi hans. hæglátur í næði, svo við eyra sæmdar manns 
syngdu Grámanns kvæði. 
 . Hann jeg ljóðin hirða bið; handar- geymir -fanna veikan þiggi vísna 
klið, verðugastur manna. 
 . Eigir þú með barkann bágt bragi fram að keyra, snígtu út á einhvern 
hátt ögn af Kvásis dreira. 
 . Láttu hvern, sem hlíðir á, hressa söngva nýja, en ekki skaltu elta þá 
undan þér sem flýja. 
 . Þessi ráðin þér eg gef, þarf ei fleira tala, fæ mér penna blek og bréf og 
bið þig nú að gala. 
0. Formálann jeg fella vil; foldin bráins leira girnist fremur, get jeg til, 
Grámanns sögu að heyra. 
 
11. Af kóngi einum kynna má,
kvæða fyrst í safni,
histórían hans þó 
frá
hermir ekki nafni. 
12. Eðalborna auðar sól
átti stýrir lýða;
honum klæða eykin ól
eina dóttur fríða. 
13. Skjöldung lætur skatna þá
skemmu fagra smíða;
þar skal
veglegt fóstur fá
foldin linna hlíða. 
14. Listir allar lærði þar
liljan orma fróna;
kurteisustu konurnar
klæða freyju þjóna. 
15. Sikling heima sat í ró,
sinna gætti búa;
mikinn átti mundar snjó,
en meiri hjarða-grúa. 
16. Skammt í burt frá höllu hans,
hagsæld gæddur minni,
aldur-hníginn brjótur brands
bjó með konu sinni. 
17. Áttu hjónin eina kú
öðrum kosta meiri,
sagan þeim ei nefnir nú
neina gripi fleiri. 
18. Einhvern dag, sem opt við bar,
aldinn hirðir geira
kreika réð til 
kirkjunnar,
kenning prests að heyra. 
19. Heyrir bóndi helgan prest
hreifa tölu sinni,
er þá ræðu efnið 
mest
út af gjafmildinni. 
20. Bóndi þenur eyrun öll
út við slíkum greinum;
streymdu tára 
fossa-föll
fram af hvarma-steinum. 
21. Þegar messan úti er,
af þeim mannfund_o_num
karlinn heim í 
kotið fer;
kerling fagnar honum. 
22. Var nú kröptug kenningin?
kerling spurði manninn;
all-vel lætur 
yfir hinn,
og enda svarar þanni_n_: 
23. Klerkur þar um kenndi öld,
krapti andans hlaðinn,
að þeir sem 
gefa, þúsundföld
þiggi laun í staðinn. 
24. Eg vil gefa okkar kú,
engin verður skaðinn;
trúðu mér, að þá fær 
þú
þúsund kýr í staðinn. 
25. Þegar fengið þetta er
þarf um skort ei klaga,
aldrei brestur okkur
smér
alla lífsins daga. 
26. Æði mikið er nú sagt,
eykin mælti spanga,
þú í orðin þessi lagt
þýðing hefir ranga. 
27. Heimskingja mig heldur þú,
hjalar skjóma viður;
þrættu hjónin 
þar um nú
þótti báðum miður. 
28. Daginn eptir seggur sá
safnar manna grúa,
fjós lét byggja firða 
þá
fyrir þúsund kúa. 
29. Aptra vildi heimsku hans
hringa- öldruð -freyja,
en alvarlegur 
brjótur brands
beiddi snót að þegja. 
30. Byggingin þá búin er,
baldur orma túna
fer að velta fyrir sér,
hver fá nú skuli kúna. 
31. Engan vissi þegninn þar,
þúsund kýr sem átti,
nema ef það 
niflung var,
sem nú bezt launa mátti. 
32. Finna samt ei þorði þann,
þegninn rausnar gildi,
annað ráð því 
hugsar hann,
hitta prestin vildi. 
33. Klerkurinn skal kúna fá,
kvistur mælti spanga,
veit jeg orðum 
sínum sá
sízt á bak mun ganga. 
34. Karl af stað með kúna fer,
kátur mjög í geði;
en kerlingin, sem 
angráð er,
engu við hann réði. 
35. Leikur nú í lyndi flest
lundi orma túna:
halur finnur helgan prest,
og honum gefur kúna. 
36. Helgur spurði herra þá,
hverju þetta sæti;
hinn því sanna hermir 
frá
með hjartanlegri kæti. 
37. Bregður presti þá við það,
þurt og kallt nam svara,
að hefði orð
sín hártogað
hirðir mundar skara. 
38. Halinn fyrir heimsku nú
hann ávíta tekur;
að því búnu karl og 
kú
klerkur frá sér rekur. 
39. Ferðin ekki gerðist greið,
gamall korða-raptur
hálf-kjökrandi 
heim á leið
hélt með kúna aptur. 
40. Ekki betur tekst þó til,
tjörgu hrjáðum njörði,
niða-myrkurs 
norðan-byl
nú á karlinn gjörði. 
41. Frost og dimma fylgdu þá,
fjúk og bylja-veður;
veslings karlinn 
vegum frá
villist kúna meður. 
42. Bóndi hugarsjúkur sér,
sig um vefur háski;
kýrin muni krókna 
hér,
og karlinn líka má sk_i_. 
43. Í því sama sér hann mann
sér á móti þoka,
upp á sínum herðum 
hann
hefur stóran poka. 
44. Sá nýkomni brjótur brands
bóndann spurði núna,
hvernig stæði 
á högum hans,
hér á ferð með kúna. 
45. Karlinn hér við klökkna vann,
kafinn þrauta banni,
sína 
rauna-sögu hann
sagði komumanni. 
46. Ílla staddur ertu nú,
orðum hinn nam flíka;
kýrin drepst, og 
kann    
    
		
	
	
	Continue reading on your phone by scaning this QR Code
 
	 	
	
	
	    Tip: The current page has been bookmarked automatically. If you wish to continue reading later, just open the 
Dertz Homepage, and click on the 'continue reading' link at the bottom of the page.
	    
	    
