á kvöldin 
um göturnar með hinum og þessum stelpum. 
Það sæmir eigi konum að kaupa tóbak í búðum og áfengi getur engin 
kona verið þekt fyrir að kaupa. 
 
*Gjafir.* 
Þú átt aldrei að þiggja gjöf frá ókunnugum karlmanni, eða þeim, sem 
þér er lítið kunnugur, nema hann sé skyldur þér.--Að þiggja gjafir frá 
hinum og þessum karlmönnum, er konu eigi samboðið; með því gefur 
hún þeim um of "undir fótinn". 
Neitaðu eigi vinsamlegri gjöf þess manns, sem þér er nágunnugur og þú 
annt hugástum; gjöf hans er vottur um, að hann ann þér. 
Ljósmyndir af þér átt þú eigi að gefa nema frændfólki og bestu vinum. 
Og eigi átt þú að þiggja ljósmyndir af þeim karlmönnum, sem þú 
þekkir lítið, nema skyldir þér séu. 
 
*Að hafa ástina að leiksoppi.*
Lauslæti--í hvaða mynd sem er,--er illgresi í blómgarði ástarinnar. Það 
setur blett á mannorð þitt; ljótan blett, sem fín föt, ilmvötn og 
kvensilfur getur ekki hulið eða afmáð. Gæt þess því vandlega, að 
enginn fái höggstað á siðferði þínu, og lítill neisti í þessum sökum getur 
tendrað stórt bál, sem slúðurkerlingarnar kynda óspart. 
Eg áminni þig alvarlega um að vera eigi lauslát, ef þú vilt verða 
hamingjusöm í lífinu og landi þínu og þjóð þinni til gagns og sóma. 
Vertu vönd í vali vinstúlkna og segðu þeim eigi leyndarmál þín, nema 
þú sért viss um hollustu þeirra. Gaktu á snið við lauslátar konur og þær 
veitingakrár, þar sem drykkjuskapur og siðleysi er daglegt brauð. Á 
þeim stöðum hafa margar konur fengið á sig óorð og fyrirgert mannorði 
sínu--og glatað lífinu um leið. 
Láttu eigi æfintýraþrá hrinda þér út í hringiðu "ástaræfintýranna", því 
að margur hefir með skarðan hlut gengið frá þeim leik, og "borið þess 
sár um æfilöng ár, sem að eins var stundar hlátur." 
Ástin er fegursta og göfugasta tilfinningin sem í mönnunum býr og lög 
hennar ná jafnt til allra. Án ástar væri lífið lítils virði og tilveran köld á 
svipinn. Okkur er bannað að fara gálauslega með líf og heilsu; sama er 
segja um ástina. 
Ef kona verður þess vör, að karlmaður, sem hún elskar eigi, sé 
ástfanginn af henni, og skýri hann henni frá því, þá ber henni að segja 
honum það hreinskilnislega, annaðhvort bréflega eða munnlega, að hún 
geti eigi endurgoldið ást hans. Þetta verður hún að gera með 
nærgætnislegum og kurteisum orðum.--Menn eiga ætíð að hlýða rödd 
hjarta síns; í þessu atriði, sem öðru, er það hið mikilvægasta, að vera 
heiðarlegur og hreinn fyrir samvisku sinni. 
Margar stúlkur geta leikið sér að hjarta ungs ástfangins manns. Oft gera 
þær það i hugsunarleysi eða til þess að skemta sér við það, en venjulega 
ekki í illum tilgangi. En manninum fellur þetta þungt og þegar hann 
kemst að sannleikanum, getur táldrægnin leitt hann út á glapstigu, 
jafnvel til sjálfsmorðs eða annara glæpa.--Mundu það, unga stúlka, að 
hjartað er fínt líffæri.
En hvort sem þessi leikur með ástina er vísvitandi eða óafvitandi, mega 
stúlkur aldrei lenda í honum. Mundu það, að hatur getur komið í ástar 
stað.--Láttu eigi hégómagirni eða augnablikstilfinningar koma þér til 
þess að hafa þann mann að leiksoppi, sem elskar þig. Segðu hinum 
ástfangna manni sannleikann hreinskilnislega. 
Og loks má bæta því við, að þessi leikur með ástina er eigi hollur fyrir 
mannorð þitt. Karlmaðurinn, sem þú hafðir að ginningarfífli, getur 
hefnt sín með því að tala illa um þig, og sá sem verður fyrir barðinu á 
almenningsrómnum, er eigi öfundsverður. 
Vertu heiðarleg í ástamálum, þá mun samviska þín vera hrein. 
 
*Að velja maka.* 
Þegar þú ferð að svipast um eftir eiginmanni, verður þú að vera 
heilskygn. Glámskygni, þegar um val eiginmanns er að ræða, getur 
orðið þér dýrkeypt, og þú iðrast þess alla æfi síðan. 
Við skulum nú athuga, hvers þú þarft að gæta, um val eiginmanns. 
Þú mátt eigi fara eingöngu eftir fríðleikanum. Þótt þér finnist þessi eða 
hinn "sætur" og "yndæll" og þótt hann sé fínn og fagurmáll, með 
harðan hatt, gljáskó og gull-gleraugu, þá máttu eigi vegna þess játa 
bónorði hans. Öll hans mærð og mælgi getur verið eins og 
sápubóla--ekkert nema litskrúðið. Þú verður að fara eftir tilfinningum 
hjarta þíns--ástinni--og engan annan mátt þú velja þér fyrir eiginmann 
en þann, sem þú elskar. Þú mátt eigi gangast fyrir auðæfum eða 
embættum, og það er barnaskapur, þegar stúlkur vilja eigi giftast nema 
"upp fyrir sig", sem svo er kallað. Ef þú giftist "upp fyrir þig", tekur 
maðurinn "niður fyrir sig", og það getur orðið sambúð ykkar að 
fótakefli. 
Veldu þér eigin mann úr þínum flokki, reglusaman mann, sem hefir vit 
og vilja á að bjarga sér; ábyggilegan og geðprúðan mann, sem eigi er 
eitt í dag og annað á morgun, eða þýtur upp á nef sér út af smáatriðum 
daglega lífsins.--Láttu fríðleikann liggja milli hluta, en mannkosti
mannsins og sameiginlega ást ykkar beggja um það, hvern þú velur þér 
fyrir eiginmann.    
    
		
	
	
	Continue reading on your phone by scaning this QR Code
 
	 	
	
	
	    Tip: The current page has been bookmarked automatically. If you wish to continue reading later, just open the 
Dertz Homepage, and click on the 'continue reading' link at the bottom of the page.
	    
	    
